Sendingarleiðir


Sendingarleiðir

Staðir Kostnaður
Heimsending á Akureyri Akureyri 990 kr
Sótt í verslun á Akureyri (Kjarnagötu 2) Akureyri Frítt
Dropp Allt land 990 kr
Eimskip (kæli & frystivörur) Allt land 1.990 kr


Skilmálar um afhendingu og sendingar

Allar pantanir sem berast fyrir kl. 12:00 á virkum dögum eru afgreiddar samdægurs.

Pantanir sem berast eftir kl. 12:00 eru afgreiddar næsta virka dag.

Afhendingartími getur verið breytilegur eftir staðsetningu viðskiptavinar, valinni afhendingarleið og þjónustu flutningsaðila.

Við leggjum áherslu á að afgreiða allar pantanir hratt og örugglega og pakka vörum vandlega svo þær berist í sem bestu ástandi.

Viðskiptavinur ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang, símanúmer og aðrar nauðsynlegar upplýsingar við pöntun. Ef upplýsingar eru rangar eða ófullnægjandi getur afhending tafist.

Ef vara skilar sér ekki, skemmist í flutningi eða önnur vandamál koma upp við afhendingu, biðjum við viðskiptavini að hafa samband við okkur eins fljótt og auðið er svo hægt sé að leysa málið.

 

Akureyri

Heimsending innan Akureyrar. Við bjóðum upp á heimsendingu innan Akureyrar alla virka daga. Sendingarkostnaður er 990 kr.

Sótt í verslun. Viðskiptavinir geta einnig sótt pöntun í verslun okkar alla virka daga. Að sækja í verslun er frítt. Athugið  ef þú velur að sækja þá eru allar pantanir úr vefverslun afhentar í verslun okkar í Kjarnagötu 2 frá 16-18:00 alla virka daga.

 

Sendingar um land allt

Dropp Við sendum vörur með Dropp um allt land. Sendingarkostnaður er 990 kr.

Kæli- og frystivörur Kæli- og frystivörur eru sendar með Eimskip til að tryggja rétta meðhöndlun og gæði vörunnar á leiðinni til viðskiptavinar. Sendingarkostnaður fyrir kæli- og frystivörur er 1.990 kr.