Um okkur
Við erum Ragnar og Ólöf, eigendur FISK Kompaní. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2013 höfum við notið einstaklega góðra viðtaka hjá Akureyringum og íbúum nærsveita.
FISK Kompaní hefur vaxið og dafnað í gegnum árin. Það er fyrst og fremst að þakka tryggum viðskiptavinum okkar og frábæru starfsfólki sem er ómissandi hluti af daglegum rekstri.
Við leggjum mikla áherslu á ferskleika, gæði og vandað hráefni. Ferskur fiskur er keyptur daglega á fiskmörkuðum landsins og allt hráefni er handflakað og snyrt af okkur sjálfum. Þannig tryggjum við gæði vörunnar frá upphafi til enda og stuðlum að ánægju viðskiptavina okkar.
Nú hefur FISK Kompaní einnig opnað vefverslun og getur því þjónustað viðskiptavini um allt land. Í vefversluninni bjóðum við upp á vandaðar sjávarafurðir, kjötvörur, gjafavörur og fjölbreytt úrval sælkeravara.
Við erum stolt af því að bjóða Akureyringum, gestum þeirra og landsmönnum öllum úrvalsgóðar sjávarafurðir og kjötvörur úr því besta sem Ísland hefur upp á að bjóða.
Verslanir FISK Kompaní:
- Kjarnagata 2 – við hliðina á Bónus (Akureyri)
- Vefverslun
